Nám
Nám í rafiðngreinum
Grunndeild rafiðna er 4 anna grunnnám fyrir allt rafiðnaðarnám.
Rafiðnaður skiptist í Sterkstraum og Veikstraum.
Sterkstraumur skiptist í rafvirkjun, rafvélvirkjun og rafveituvirkjun.
Veikstraumur skiptist í rafeindavirkjun og símsmíði.
Einnig eru tæknimenn kvikmyndahúsa og fjölvakamiðla innan þeirra greinar.
Sveinspróf eru haldin tvisvar á ári í febrúar og júní.
Sveinsprófsnefnd fyrir Sterkstraum sér um próf í rafvirkjun, rafvélavirkjun og rafveituvirkjun.
Sveinsprófsnefnd fyrir Veikstraum sér um próf í rafeindavirkjun og símsmíði.
Menntamálaráðuneytið, Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins og sveinsprófsnefndir í rafiðnaði hafa gert með sér samning vegna umsýslu sveinsprófa og námssamninga í rafiðngreinum.
Í samningi þessum er Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins falin umsýsla sveinsprófa, eftirlit með gerð og framkvæmd námssamninga í rafiðngreinum.
Menntamálaráðuneytið setur reglugerðir um námssamninga og starfsþjálfun (nr.280 frá 17. apríl 1997), með reglugerð um breytingu (nr.423 frá 6 júní 2000) og reglugerð um sveinspróf (nr. 525/2000).
Í reglugerðum þessum er fjallað um skyldur samningsaðila og þau skilyrði sem uppfylla þarf til að taka að sér kennslu nema á vinnustað og framkvæmd sveinsprófa.
Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins veitir nemum og rafiðnaðarfyrirtækjum allar upplýsingar er varða gerð náms- og starfsþjálfunarsamninga og vera til aðstoðar um gerð þeirra.
Hjá Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins liggja frammi öll eyðublöð er varða rafiðnaðarmenntunina og þangað skulu berast öll erindi um nýja námssamninga, breytingar á námssamningum og umsóknir um sveinspróf.
Starfsmenn fræðsluskrifstofunnar eru:
Ísleifur Árni Jakobsson Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Stefán Ólafur Guðmundsson Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Síðast uppfært (Mánudagur, 29. mars 2010 11:12)






