Nám í grunndeild rafiðna
Markmið brautarinnar er að veita nemendum undirstöðuþekkingu í rafiðnaði,
almennu bóklegu námi og sérgreinum.
Brautin er forsenda fyrir námssamningi í rafvirkjun, rafvélavirkjun og rafveituvirkjun
og veitir einnig aðgang að framhaldsdeildum rafiðna.
Námstími í skóla er 4 annir.
Almennar greinar 23 ein.
Íslenska ÍSL 102 202 4 ein.
Erlend tungumál ENS 102 DAN 102 + 4 ein. 8 ein.
Stærðfræði STÆ 102 122 4 ein.
Lífsleikni LKN 103/101 111 121 3 ein.
Íþróttir ÍÞR 101 111 201 211 4 ein.
Sérgreinar 57 ein.
Rafeindatækni og mælingar RTM 102 202 302 6 ein.
Raflagnir RAL 102 202 303 403 10 ein.
Rafmagnsfræði og mælingar RAM 103 203 303 403 12 ein.
Skyndihjálp SKY 101 1 ein.
Stýringar og rökrásir STR 102 203 302 402 9 ein.
Tölvur og netkerfi TNT 102 202 303 403 10 ein.
Verktækni grunnnáms VGR 103 202 302 402 9 ein.
Samtals 80 ein.
Lokamarkmið grunnnáms
Meginmarkmið grunnnáms rafiðna er að veita almenna og faglega undirstöðumenntun undir sérnám í rafiðngreinum.
Að loknu grunnnámi rafiðna á nemandi að:
- þekkja störf og starfsumhverfi innan rafiðnaðarins og vita um námsleiðir að loknu grunnnámi rafiðna
- gera sér grein fyrir sögulegu og menningarlegu mikilvægi raforku og raforkumannvirkja og mikilvægi umhverfisverndar í atvinnugreininni
- kunna skil á helstu ákvæðum reglugerðar varðandi raforkuvirki
- kunna skil á öryggisráðstöfunum á vinnustað og mikilvægi heilsuverndar
- geta unnið í samræmi við gæðakröfur og staðla sem gilda í rafiðnaði og eftir verklagsreglum og gátlista
- geta notað helstu hand- og rafmagnsverkfæri í rafiðnaði í samræmi við viðteknar öryggiskröfur og þekkja almennar varúðarráðstafanir í umgengni við rafmagn
- þekkja helstu efni sem unnið er með í rafiðnaði
- geta lesið og skilið teikningar og verklýsingar af raflögnum og rafeindarásum
- geta lagt raflagnastokka og rennur og sett raflagnir og endabúnað í þær
- geta lagt og tengt boðskiptalagnir og þekkja helstu tengi og samskiptastaðla
- þekkja notkun tölvutækni við hönnun, teikningu, hermun, áætlanagerð og kostnaðarútreikninga
- geta sett upp hugbúnað til að tengja tölvur saman á neti, við internetið og sett upp helstu internetforrit, s.s. póstforrit og vafra
- þekkja heiti og hugtök í rafmagnsfræði og geta reiknað út mismunandi rafmagnsrásir
- geta notað algengustu mælitæki við ástands- og bilanagreiningu á raflögnum og rafeindarásum
- þekkja virkni helstu gerða aflstýringa og rafmótora
- geta reiknað út og smíðað einfaldar rafeindarásir með virkum og óvirkum íhlutum
- þekkja virkni skynjara og tengingu þeirra við rafeindarásir
- þekkja helstu tæki sem notuð eru við miðlun
- geta stillt upp jöfnum og einfaldað rökrásir
- geta hannað og tengt segulliðastýringar og einfaldar loftstýringar
- geta forritað og tengt litlar stýrivélar og raðað saman einingum til að mynda iðnaðarrekla
- þekkja uppbyggingu tölvunnar og helstu einingar hennar, geta tengt jaðartæki og sett upp rekla fyrir þau
- geta sett upp stýrikerfi á tölvu og algengasta notendahugbúnað, s.s. ritvinnslu, töflureikni og þess háttar
Skólar sem kenna grunndeild rafiðna eru:
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Tækniskólinn skóli atvinnulífsins
Framhldsskólinn í Vestmannaeyjum
Síðast uppfært (Fimmtudagur, 08. júlí 2010 11:06)






