Kvikmyndasýningastjórn
Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast nauðsynlega þekkingu og færni í stjórnun kvikmyndasýninga í kvikmyndahúsum.
Samningsbundið starfsnám
Almennar greinar 23 ein.
Íslenska ÍSL 102 202 4 ein.
Erlend tungumál ENS 102 DAN 102 + 4 ein. 8 ein.
Stærðfræði STÆ 102 122 4 ein.
Lífsleikni LKN 103/101 111 121 3 ein.
Íþróttir ÍÞR 101 111 201 211 4 ein.
Sérgreinar í grunndeild rafiðna (1.-4.önn) 57 ein.
Rafeindatækni og mælingar RTM 102 202 302 6 ein.
Raflagnir RAL 102 202 303 403 10 ein.
Rafmagnsfræði og mælingar RAM 103 203 303 403 12 ein.
Skyndihjálp SKY 101 1 ein.
Stýringar og rökrásir STR 102 203 302 402 9 ein.
Tölvur og netkerfi TNT 102 202 303 403 10 ein.
Verktækni grunnnáms VGR 103 202 302 402 9 ein.
Starfsþjálfun 12 vikur 12 ein.
Samtals 92 ein.
Lokamarkmið náms í kvikmyndasýningarstjórn
Að loknu sérnámi í kvikmyndasýningarstjórn á nemandi að:
- þekkja helstu tegundir filma, brunamörk þeirra og styrkleika
- þekkja gerð hljóðfilmunnar, hljóðtækjanna og myndun hljóðsins
- þekkja starfsemi og fyrirkomulag rafkerfis í sýningarherberginu og áhorfendasal, þar með talin ljós og annan útbúnað sem þarf til kvikmyndasýningar
- geta undirbúið filmu til sýningar með því að líma saman filmur
- geta gert við filmu sem skaddast
- geta sett filmu í og stjórnað sýningarvél
- geta annast reglubundna hreinsun og stillingu á sýningarvél og skipt um íhluti, s.s. lampa og slithluti
- geta annast auglýsingakerfi kvikmyndahússins, stjórnað og haft eftirlit með myndsýningartækjum og tölvubúnaði sem því tilheyrir.
- geta stjórnað loftræsti-, hita- og öryggiskerfi kvikmyndahússins
- geta brugðist við neyðarástandi í kvikmyndahúsi.
Síðast uppfært (Þriðjudagur, 30. mars 2010 14:20)






