Rafeindavirkjun
Meginmarkmið náms í rafeindavirkjun er að gera nemendum kleift að öðlast þekkingu og færni til að takast á við störf rafeindavirkja, einkum við uppsetningu, viðhald og viðgerðir boðskiptakerfa og rafeindatækja, notenda- og tölvubúnaðar heimila, fyrirtækja og stofnana sem og rafeindabúnaðar farartækja í lofti, láði og legi.
Almennar greinar 26 ein.
Íslenska ÍSL 102 202 4 ein.
Erlend tungumál ENS 102 DAN 102 + 4 ein. 8 ein.
Stærðfræði STÆ 102 122 4 ein.
Lífsleikni LKN 103/101 111 121 3 ein.
Íþróttir ÍÞR 101 111 201 211+3 7 ein.
Sérgreinar í grunndeild rafiðna (1.-4.önn) 57 ein.
Rafeindatækni og mælingar RTM 102 202 302 6 ein.
Raflagnir RAL 102 202 303 403 10 ein.
Rafmagnsfræði og mælingar RAM 103 203 303 403 12 ein.
Skyndihjálp SKY 101 1 ein.
Stýringar og rökrásir STR 102 203 302 402 9 ein.
Tölvur og netkerfi TNT 102 202 303 403 10 ein.
Verktækni grunnnáms VGR 103 202 302 402 9 ein.
Sérgreinar rafeindavirkjun (5. – 7 önn) 57 ein.
Fagteikning rafeindavirkja FTK 101 201 301 3 ein.
Fjarskiptatækni FJS 103 203 303 9 ein.
Net og miðlun NOM 103 203 303 9 ein.
Rafeindabúnaður RAB 103 203 303 9 ein.
Rafeindavélfræði MEK 103 203 303 9 ein.
Smíði og hönnun rafeindatækja SMH 103 203 6 ein.
Stafræn tækni og sjálfvirkni STS 103 203 303 9 ein.
Sérgreinar val (einn af neðan töldum valin) 3 ein.
Fjarskiptatækni FJS 103
Iðntölvur STR 503
Smíði og hönnun rafeindatækja SMH 303
Upptökutækni, hljóð/mynd UHM 103
Starfsþjálfun 24 vikur 24 ein.
Samtals 164 ein.
Lokamarkmið náms í rafeindavirkjun
Að loknu námi á nemandi að:
- geta annast uppsetningu, stillingar, viðhald og viðgerðir á rafeindatækjum samkvæmt gildandi reglugerðum og stöðlum
- geta lesið rásateikningar og leiðarvísa frá tækjaframeiðanda með tækjum á ensku og á einu Norðurlandamáli
- geta hannað og teiknað, hermt og smíðað einfaldar rafeindarásir
- geta séð um hönnun og uppsetningu boðskiptakerfis í samræmi við gildandi reglugerðir, staðla og kröfur sem gerðar eru til búnaðar og lagna í boðskiptakerfum og kunna að magntaka og vinna verkáætlanir fyrir uppsetningarverkefni.
- þekkja helstu gerðir og virkni rafeindatækja sem eru um borð í skipum og bátum
- geta hannað og forritað einfaldar stýritölvur og tengt þær við skynjara og úttakstæki
- geta hannað og teiknað, hermt, smíðað og forritað rafeindarásir sem tengja saman skynjara, örtölvur og mótora (rafeindavélfræði)
- geta sett upp og gert við tölvur
- geta sett upp og stillt högun helsta notendahugbúnaðar, s.s. skrifstofu- og bókhaldshugbúnaðar
- geta sett upp og stillt högun notendaþjónustu s.s.vef-, póst- og gagnagrunnsþjónustu
- geta skipulagt og tengt helsta nethugbúnað
- geta sett upp helsta vélbúnað fyrir netþjóna og þekkja helstu kröfur varðandi öryggismál á vélbúnaði netþjóna
- geta sett upp og stillt högun á helsta nethugbúnaði
- geta sett upp og stillt högun á helstu netþjónustum í netþjónum og útstöðvum
- geta sett upp og stillt högun á helstu þjónustum fyrir internetsamskipti
- þekkja og geta skipulagt helstu öryggisþætti varðandi netsamskipti
Síðast uppfært (Þriðjudagur, 30. mars 2010 14:17)






