Nám í rafvirkjun
Meginmarkmið náms í rafvirkjun er að gera nemendum kleift að öðlast þekkingu og færni til að takast á við störf rafvirkja, einkum við lagningu raflagna, uppsetningu og tengingu rafbúnaðar, mælingar, eftirlit, viðhald og viðgerðir á rafbúnaði.
Iðnnám á verknámsbraut
Almennar greinar 26 ein.
Íslenska ÍSL 102 202 4 ein.
Erlend tungumál ENS 102 DAN 102 + 4 ein. 8 ein.
Stærðfræði STÆ 102 122 4 ein.
Lífsleikni LKN 103/101 111 121 3 ein.
Íþróttir ÍÞR 101 111 201 211+3 7 ein.
Sérgreinar í grunndeild rafiðna (1.-4.önn) 57 ein.
Rafeindatækni og mælingar RTM 102 202 302 6 ein.
Raflagnir RAL 102 202 303 403 10 ein.
Rafmagnsfræði og mælingar RAM 103 203 303 403 12 ein.
Skyndihjálp SKY 101 1 ein.
Stýringar og rökrásir STR 102 203 302 402 9 ein.
Tölvur og netkerfi TNT 102 202 303 403 10 ein.
Verktækni grunnnáms VGR 103 202 302 402 9 ein.
Sérgreinar í rafvirkjun (5.-7.önn) 57 ein.
Forritanleg raflagnakerfi FRL 103 203 6 ein.
Lýsingartækni LÝS 103 3 ein.
Raflagnateikningar RLT 102 202 302 6 ein.
Raflagnir RAL 503 603 704 10 ein.
Rafmagnsfræði og mælingar RAM 502 602 702 6 ein.
Rafvélar RRV 103 203 302 8 ein.
Reglugerðir RER 103 3 ein.
Smáspennuvirki VSM 103 203 6 ein.
Stýringar og rökrásir STR 503 603 6 ein.
Valið lokaverkefni VLV 103 3 ein.
Starfsþjálfunar samningur í 24 vikur 24 ein.
Samtals 164 ein.
Samningsbundið iðnnám
Almennar greinar 25 ein.
Íslenska ÍSL 102 202 4 ein.
Erlend tungumál ENS 102 DAN 102 + 4 ein. 8 ein.
Stærðfræði STÆ 102 122 4 ein.
Lífsleikni LKN 103/101 111 121 3 ein.
Íþróttir ÍÞR 101 111 201 211+2 6 ein.
Sérgreinar í grunndeild rafiðna (1.-4.önn) 57 ein.
Rafeindatækni og mælingar RTM 102 202 302 6 ein.
Raflagnir RAL 102 202 303 403 10 ein.
Rafmagnsfræði og mælingar RAM 103 203 303 403 12 ein.
Skyndihjálp SKY 101 1 ein.
Stýringar og rökrásir STR 102 203 302 402 9 ein.
Tölvur og netkerfi TNT 102 202 303 403 10 ein.
Verktækni grunnnáms VGR 103 202 302 402 9 ein.
Sérgreinar í rafvirkjun (5.-6.önn) 33 ein.
Forritanleg raflagnakerfi FRL 103 203 6 ein.
Lýsingartækni LÝS 103 3 ein.
Raflagnateikningar RLT 102 202 302 6 ein.
Rafmagnsfræði og mælingar RAM 502 602 702 6 ein.
Reglugerðir RER 103 3 ein.
Smáspennuvirki VSM 103 203 6 ein.
Stýringar og rökrásir STR 503 3 ein.
Námssamningur í 48 vikur 48 ein.
Samtals 163 ein.
Lokamarkmið sameiginlegs náms í rafvirkjun, rafvélavirkjun og rafveituvirkjun
Að loknu námi á nemandi að:
- þekkja reglugerðir er varða raforkuvirki og geta unnið samkvæmt þeim
- geta annast raflagnir og eftirlit með raflögnum og búnaði í samræmi við gildandi reglugerðir og staðla
- kunna að magntaka og vinna verkáætlun fyrir verkefni og færa verkdagbækur og vinnuseðla
- geta notað almenn og sérhæfð mælitæki við störf sín
- geta annast bilanaleit í rafbúnaði og rafleiðslum, m.a. með hjálp mælitækja
- geta annast viðhald gamalla raflagna og endurbætur á þeim
- geta sett upp og tengt rafbúnað í rafmagnstöflum og tengt raflagnir við rafmagnstæki
- geta skilið teikningar og hannað raflagnir bæði við uppsetningu rafbúnaðar og við bilanaleit og viðhald og skilað inn reyndarteikningu af raflögn
- geta annast uppsetningu og viðhald hvers konar raftækja, iðntölvustýringa og stýribúnaðar í iðnfyrirtækjum og iðjuverum landsins
- þekkja rafeindabúnað sem notaður er til aflstýringa, þekkja tákn og teikningar rafeindabúnaðar, geta fundið bilanir og lagfært þær
- geta starfað við uppsetningu rafala, spennu- og dreifivirkja í raforkuverum
- geta starfað við flutning raforkunnar frá orkuverum til notenda, línu- og jarðstrengjalagnir sem og við uppsetningu og tengingu spennuvirkja
- kunna skil á þeirri segulvirkni sem rafvélar byggjast á og gera sér grein fyrir myndun segulsviða og áhrifa þeirra á rafala og hreyfilvirkni
- geta unnið við mismunandi gerðir rafvélastýringa er tengjast snúð- og sáturvöfum rafvéla og öðrum stjórnbúnaði véla
- þekkja helstu hugtök er varða lýsingartækni og geta reiknað út lýsingarþörf miðað við mismunandi aðstæður
- geta gefið ráð um val á raftækjum og lýsingabúnaði
- þekkja helstu hugtök er varða hita- og loftræstikerfi
- þekkja mismunandi skynjun á hita og helstu reglunaraðferðir
- geta veitt þjónustu og annast viðhald rafvéla og raftækja ásamt nýlögnum og rekstri rafkerfa í farartækjum á sjó
- þekkja staðla og reglugerðir er varða raflagnir í skipum og bátum
- þekkja öryggisþætti í rafiðnaði, s.s. neyðarrofa, neyðarstopp, snertihættu
Sértæk lokamarkmið náms í rafvirkjun
Að loknu sérnámi í rafvirkjun á nemandi að:
- þekkja forritanleg raflagnakerfi og geta forritað og gengið frá slíku kerfi á sjálfstæðan hátt og geta leiðbeint um notkun slíkra kerfa
- geta tengt rafveitu við húsveitu.
- þekkja lýsingarkerfi
- geta unnið við raflagnir stærri húsveitna og iðnaðarhúsnæðis
- geta gengið frá öllum innanhúslögnum fyrir boðskiptalagnir, tengt endabúnað og gert viðeigandi mælingar til að kanna áreiðanleika kerfanna
- geta valið lokaverkefni í rafiðnaði
- þekkja til raflagnateikninga
- þekkja varnarráðstafanir í húsveitum, virkni og prófun
Síðast uppfært (Þriðjudagur, 15. júní 2010 10:44)






