Ertu í hljóði?
Raunfærnimat í hljóðvinnslu.
Kynningarfundur verður haldinn
mánudaginn 16. janúar 2012 kl. 17:00
í húsnæði Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27.
(Gengið inn Grafarvogs megin)
Ef þú starfar við upptökur, hljóðvinnslu eða mögnun og hefur gert það í nokkurn tíma þá er þetta eitthvað fyrir þig. (Bæklingur á PDF formi)
Umsóknareyðublað um þátttöku í raunfærnimati í hljóðvinnslu
Best er að vista skjalið á skjáborðið og senda síðan útfyllt á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Hvað er raunfærnimat?
Raunfærnimat er skipulagt ferli þar sem lagt er formlegt mat á alhliða þekkingu og færni einstaklings sem hann hefur aflað sér með t.d. starfsreynslu, námi, félagsstörfum og lífsreynslu. Markmiðið er að einstaklingur fái viðurkennda þá raunfærni sem hann býr yfir á ákveðnum tíma.
Algengast er að raunfærnimat fari fram á móti námsskrá og til dæmis hafa yfir 500 einstaklingar lokið raunfærnimati á móti námsskrám í iðngreinum.
Raunfærnimat í þessu verkefni er á móti viðmiðum sem eru búin til í atvinnulífinu og er það sjaldgæfara.
Mat og staðfesting á þekkingu og reynslu
Hægt er nálgast frekari upplýsingar um raunfærnimat á heimasíðu Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins www.fsraf.is.
Ef þú óskar eftir frekari upplýsingum um verkefnið er hægt að hafa samband við Ísleifur Árna Jakobsson hjá Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins í síma 580-5252 eða með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ferillinn í verkefninu (áætlun vor 2012)
Þú kynnir þér verkefnið
- Upplýsingafundur
- Ákvörðun um hvort þú sækir um
- Umsóknareyðublað
- Bókar viðtal við náms- og starfsráðgjafa
Þú ferð í viðtal við náms- og starfsráðgjafa
- Kynning á ferlinu
- Þú leggur fram gögn um reynslu
- Endanlegur hópur þátttakenda verður til
Þú skráir reynslu og leggur mat á þekkingu þína miðað við færniviðmið
- Skráir reynslu, fyrra nám og aðra þekkingu sem þú býrð yfir
- Sjálfsmat – þátttakandi leggur mat á færni út frá færniviðmiðum
- Samtal við stjórnanda eða samstarfsmann um sjálfsmat þitt
Þú ferð í raunfærnimat
- Raunfærnimat byggist á samtali milli þín og þess sem er fagaðili
- Þar er lögð áhersla á að þú fáir tækifæri til að koma á framfæri þekkingu þinni og færni
- Þú getur verið beðin/n um að sýna færni þína, það geta verið lagðar fyrir þig lýsingar á aðstæðum og þú beðin/n að vinna úr þeim eða settar fram aðrar aðferðir sem nýtast í því skyni að gera færni þína sýnilegri
Að loknu raunfærnimati
- Farið yfir niðurstöður með þér
- Þú færð í hendur staðfestingu á færni
Átt þú erindi?
Færniviðmiðin eru á tveimur þrepum.
3. þrep: Vinnur almennt undir leiðsögn annarra en getur framkvæmt einfaldari verk á afmörkuðum sviðum.
Kröfur um aldur og starfsreynslu: 23 ára og þriggja ára reynsla í hljóðvinnslu.
4. þrep: Vinnur sjálfstætt að verkefnum, tekur faglegar ákvarðanir, bregst við óskum stjórnenda/verkkaupa, kemur að stýringu verkefna og veitir ráðgjöf á sjálfstæðan hátt.
Kröfur um aldur og starfsreynslu: 25 ára og fimm ára reynsla í hljóðvinnslu.
Ef þú hefur starfsreynslu og hefur ekki lokið námi á framhaldsskólastigi í hljóðvinnslu þá er þess virði að kynna sér málið.
Hver er tilgangurinn?
Undanfarið ár hefur verið unnið að því að skilgreina hvaða færnikröfur hljóðmenn þurfa að uppfylla í starfi sínu. Myndaður var faghópur sem samanstendur af einstaklingum úr ólíkum geirum hljóðvinnslu og hópur stjórnenda sem mótuðu kröfur um færni hljóðmanna. Auk þess var tekið mið af námsskrá Tækniskólans-skóla atvinnulífsins. Nú liggja þessi færniviðmið fyrir og býðst þeim sem hafa starfsreynslu úr hljóðheimum að fara í raunfærnimat á móti þeim.
Eftir raunfærnimat fær einstaklingurinn skjal þar sem raunfærni hans er staðfest. Það skjal getur hann notað til að sýna fram á færni sína á núverandi vinnustað, þegar hann sækir um vinnu eða þegar hann þarf að sýna fram á færni vegna verkefna.
Markmiðið er að eftir raunfærnimatið liggi fyrir skilgreining á færni viðkomandi einstaklings. Þessar upplýsingar getur hann einnig nýtt til að sækja frekari þekkingu ef hann telur þörf á.
Í stuttu máli, markmið raunfærnimats er að meta færni og gefa út staðfestingu á henni.
Hverjir standa að verkefninu?
Verkefnið er unnið að frumkvæði Félags tæknifólks í rafiðnaði en í stýrihópi sitja fulltrúar fyrirtækja í hljóðvinnslu auk Tækniskólans - skóla atvinnulífsins og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins stýrir verkefninu og leggur til sérfræðiþekkingu vegna raunfærnimats en Mímir-símenntun sér um náms og starfsráðgjöf.
Verkefnið er hluti af Leonardoverkefninu REVOW - Viðurkenning á gildi starfa og er unnið með styrk frá Starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins og Starfsmenntaráði.
Síðast uppfært (Miðvikudagur, 11. janúar 2012 14:32)






